Show frontpage
Gisting í fríinu

Margt er í boði þegar kemur að gistingu í fríinu. Hægt er að gista á stærstu hönnunar hótelum Danmerkur, dvelja á huggulegum tjaldsvæðum úti í náttúrunni, fara á svefnpokahótel eða skipta á íbúðum. Það þarf ekki að vera dýrt að vera í fríi í Danmörku, það er hægt að finna gistingu á mjög góðu verði.

Auk þess sem hægt er að gera fullt af skemmtilegum hlutum sem kosta ekki neitt. Margir menningar atburðir kosta ekkert eins og ókeypis dagar á söfnum. Hægt er að horfa á bíómyndir undir berum himni, einnig eru í boði tónlistarviðburðir og uppákomur sem kosta ekki neitt. Og í miðborg Kaupmannahafnar er hægt að fá afnot af hjólum ókeypis.

Hægt er að eignast peninga með því að tína jarðarber á morgnana og skemmta sér á kvöldin. Danmörk er landbúnaðarland og þeir sem eru í EU geta unnið tímabundið í landinu. Þegar jarðarberjauppskeran er koma unglingar allstaðar frá EU til að tína jarðarber.

Unglingarnir búa í tjöldum á sveitabæjunum, þetta er frábært tækifæri til að kynnast öðru ungu fólki. Þegar jarðarberja tíminn er búinn er oft möguleiki á að fá vinnu áfram á sveitabæunum eða öðrum bæjum í nágrenninu.

Ríkisborgar í EU mega vinna 3 mánuði í Danmörku án sérstaks leyfis. En það er ráðlegt að vera búinn að finna vinnu áður en farið er að heiman til að öll formsatriði séu örugglega í lagi. Nánari upplýsingar er að finna á
www.seasonalwork.dk.
Prófaðu að búa inn á alvöru heimili í Danmörku á meðan önnur fjölskylda fær afnot af þínu húsnæði. Það er vinsælt og fjárhagslega hagkvæmt að skipta á húsnæði við aðra fjölskyldu. Það er gott að þurfa ekki að borga fyrir gistingu í öðru landi. Þú hugsar um nýja heimilið eins og þitt eigið, vökvar blómin, gefur hundinum og ferð út með ruslið. Þú kynnist nágrönnunum, verslar hjá kaupmanninum á horninu og ef þú ert heppin er þér boðið í grill í götunni. Þú upplifir hið daglega líf í landinu, en ert ekki bara ferðamaður.

Yfir 50 lönd bjóða upp á íbúðaskipti.

www.bbdk.dk/byt  
http://www.intervac.dk/  
www.boligbytte.com  
www.homeexchange.com  
Það eru gistiheimili um allt í Danmörku, oft í mjög áhugaverðum byggingum. Danhostel Copenhagen City er staðsett i hjarta miðborgarinnar með frábæru útsýni yfir borgina. Þetta er eitt stærsta hönnunar hótel Evrópu hannað af Gubi sem hannaði m.a. húsgögnin í Modern Art safninu í New York.

Á hótelinu eru 15 reyklausar hæðir með útsýni yfir höfnina, þök og turna Kaupmannahafnar. Ódýrast er að sofa í sameiginlegum herbergjum sem kosta aðeins 120,00 DKK á mann nóttin. Öll herbergin eru með klósetti og sturtu.

Til að gista á Danhostel þarftu að hafa meðlimakort fyrir farfuglaheimili sem kostar 70,00 DKK á mann. Börn í fylgd með fullorðnum þurfa ekki kort. Ef þú ert ekki með kort þarftu að borga 35,00 DKK aukalega. Kortið borgar sig upp á 2 nóttum.

Search for Danhostels in Denmark

Ódýrasta gistingin er Sleep In. Þú finnur slíka gistingu bæði í Kaupmannahöfn og Aarhus. Þetta er staðurinn þar sem allir bakpokaferðalangar úr öllum heiminum hittast.

Allir sofa í sameiginlegum sal, sem hefur sameiginlegt klósett og sturtu, hægt er að fá morgunmat á Sleep In. Ekki þarf að hafa meðlimakort til að sofa á Sleep inn. Það eru nokkrir Sleep in gististaðir í Kaupmannahöfn. Í hjarta hinnar líflegu Norðurbrúar er að finna bakapoka hótelið " Sleep in Heaven " og ecological Sleep In "Sleep in Green".

Það eru líka Sleep in staðir á Vesturbrú og Austurbrú. Í Aarhus er Sleep in staður við höfnina, sem er í stuttu göngufæri frá hinum heillandi miðbæ. Margir Sleep in staðir eru bara opnir á sumrin.

www.sleepinheaven.dk  
www.sleep-in-fact.dk  
www.belaegningen.dk  
www.sleep-in.dk  
www.sleep-in-green.dk  
www.citysleep-in.dk  
Að tjalda úti í einhverjum af dönsku eyjunum er mjög vinsælt meðal danskra fjölskyldna. Tjaldstæðin eru staðsett á litlum eyjum þar sem engir vegir eru og engin bílaumferð. Að gista í tjaldi, elda í hóp með fleirum og njóta matarins í góðum félagsskap við opinn eld er ekki amalegt.

Aðstaðan á tjaldstæðunum er mismunandi en það þarf venjulega að panta slíka gistingu fyrirfram. Auk gistingarinnar er hægt að gera margt sér til skemmtunar eins og að róa kajak, hlusta á tónlist og dansa eða hreinlega bara að njóta umhverfisins.Verð á þessari tegund gistingar er mjög sanngjarnt og þú getur bókað á www.billetnet.dk  

Skoðaðu einnig tjaldstæði í eyjum á heimasíðunni þeirra: www.oelejr.dk  


Leit að gistingu og dægradvöl